Reykjavík - Flugvél - Dalvík/ReynirEgill Kristinsson
Þá styttist óðfluga í helgina og komin svona nettur spenningur í mann. Á morgun er ég sem sagt að fara til Reykjavíkur að horfa á Gylfa kallinn í x-factor. Ég er í raun búinn að vera að bíða eftir þessari helgi síða í desember þegar Gylfi tjáði mér það að hann væri kominn í úrslitin í x-factor. Ég hringdi í Steina sem nú er búsettur í Rvk og doblaði hann með mér í vetrargarðinn. Steini brást snöggur við keypti miða og fengum við þarna miða númar þrjú og fjörg.. Halda mætti að hann hafi bara beðið í biðröð til að fá miða, en ég meina hvað gerir maður ekki fyrir félagana og Gylfi á svo sannarlega skilið góðan stuning frá okkur. Ég vona að allir sem þekkja Gylfa eða kannst eitthvað við hann taki sig til og kjósi hann svona nokkrum sinnum.. allanvega verð ég með símann stútfullan af inneign til að kjósa kallinn og vonandi kemst hann bara sem lengst.. Ég veit ekki alveg hvort ég sé stressaðari fyrir þetta eða hann, þótt það sé nú réttara að hann sé það frekar þar sem hann er að fara að syngja fyrir alla þjóðin. Hann á nú að vera vanur að syngja fyrir fjölmenni þar sem hann hefur verið að syngja helling í tjarnaborg á ólafsfirði þó það sé kannski bara fólk sem hann þekkir en það er bara að vona það besta.Stoppið í rvk verður nú ekki langt þar sem ég á flug suður 14.25 og síðan til baka á laugardegi kl 14.00. Ástæðan fyrir því er sú að ég er að fara að keppa í fótbolta á ak kl 17.30. Þar erum við strákarnir í Dalvík/Reyni að fara að spila við Magna í powerade mótinu. gengi okkar hingað til í mótinu hefur verið mjög gott þar sem við erum í 2.sæti eftir 2 leiki með 6 stig, jafn mörg og KA sem hafa betri markatölu. Fyrst unnum við völsund 4-3 og síðan lögðum við þór af velli 2-0. Þessi Magna leikur er svona eiginlega úrslita leikurinn fyrir okkur í þessu móti, því ef við vinnum erum við komnir með 9 stig og þá vil ég meina að við eigum bara einn leik eftir sem við gætum tapa og það er á móti KA.. Þetta er svona mitt álit á þessu. Magni sem ver með D/R í riðli í 3.deildinni siðasta sumar eru með sterkt lið en þeir komust upp í 2.deild síðasta sumar og verður þetta án efa erfiður leikur. Gengi þeirra í mótinu til þessa er ekki frá sögu færnadi þar sem þeir hafa tapað báðum síðnum leikujum, á móti KA 4-1 og móti Huginn 3-2.
Um kvöldið ætlum við strákarnir svo að gera okkur gott kvöld og fara á Greifann og aldrei að vita hvert leið okkar liggur eftir það ;) það er aldrei að vita, fólk getur bara lagt saman 2 og 2. Smá vísbending. Það er laugardagskvöld, menn ný búnir að spila um daginn, og hittingur hjá Kristó eftir Greifann. ÍS KALDUR ;)
P.S. Allir eða leggja sitt af mörkum og kjósa Gylfa svo hann komist áfram í X-factor.. Skal lofa ykkur því að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum með kallinn ef þið kjósið..
Egill Ármann Kristinsson
Hvað er að gerast?Egill Kristinsson
Ég hreinlega veit ekki hvað er að gerast hérna á Akureyri þessa dagana.. Málið er það að ég ákvað að kíkka aðeins út fyrir þröskuldinn heima hjá mér og fór með Gylfa og Óla niðrí bæ í gær. Að sjálfsögðu var byrjað að fara á Kaffi Akureyri þar sem var bara fín stemming og fínt að setjast og spjalla. Eftir smá stund ákváðum við að fara á Kaffi Amour þar sem er ný búið að opna aftur eftir að það kviknaði í þar og var aðeins breytt til þarna í húsinu.. Staðurinn orðinn reykingarlaus sem er bara gott mál en fólkið sem var þarna var ekki alveg gott mál.. Fyrst hélt ég að ég væri orðinn ruglaður og að ég hafði ruglast eitthvað og farið á vélsmiðjuna. Eina breytingin a fólkinu var kannski sú að þetta var bara svona menningar fólk sem var þarna eitthvað svona eldra fólk sem var allan tímann í stígandi sveiflu. Ekki var stoppað lengi og var ákveðið að kíkka á Capone. Ég veit ekki hvort maður á að segja að það hafi verið eitthvað skárra þar, hefði frekar viljað vera bara áfram í menningunni á Amour, en þarna var lang flestir labbandi um með svona stöng og boka á stönginni og bara með fljótandi í æð, og ekki var það morfín sem það var að fá í æð, það hvefur veruð eitthvað sterkara en það.. Gjörsamlega ógeðslegt.Eini staðuinn í dag sem manni líður þannig að maður pass inn er Kaffi Akureyrir og svo kannski sjallinn þegar maður leggur leið sína þangað.
En úr einu í annað. Á dag vorum við í Dalvík/Reyni að spila við Þór í Powerade mótinu og fóru leikar þannig að við uppskárum sigur 2-0 þar sem Gunni og Maddi skoruðu mörkinn.. Ekki slæmt og nú erum við í 1-2. sæti ásamt KA með 6 stig eftir 2 leiki. Ekki slæmt og margur spekingurinn ekki reiknað með því að við myndum ná svona góðum úrslitum.
Úr öðru í allt annað. Eins og alþjóð veit kannski þá er Gylfi kallinn að fara að syngja í X-Factor næstu helgi og hef ég ákveðið að skella mér suður og líta á kallinn. flýg þarna suður á föstudegi og svo aftur norður á laugardegi þar sem ég er að fara að spila seinni part laugardags. Nú veit ég ekki hvort það er viðeigandi að láta eins og hálfviti á þessari keppni þarna og vera með einhver agaleg læti eða kannski skella sér úr bolnum og vera með einhver skilaboð á bringunni, ég veit það ekki, en hvað gerir fólk ekki til að komast í sjónvarpið, sumir syngja og komast í sjónvarpið en aðrir þurfa að láta eins og asnar og helst gera sig og aðra að fíflum til að komast í kassan.. ætla þetta seinna eigi svona meira við mig ;) En ég held ég haldi mig bara rólegum svona fyrir Gylfa, en samt aldrei að segja aldrei.
ATH. vil vekja athyggli á því að í þessari færslu eru kláralega eingar ýkjur, og allt sem hér er skrifað er klárlega satt.. kannski eitthvað smá ýkjur hér ofarlega í textanum, en segjum samt ekki því að þetta lýsir ástandi gærdagsins bara flott.
Egill Ármann
Put your hands up for DetroitEgill Kristinsson
já lagið er klárlega Put your hands up for Detroit. Snilldar lag.. En það er nú ekki á hverjum degi sem menn semja ljóð um mann eins og hann símon hefur nú gert.. ég satt inná síðuna hans.. www.blog.central.is/monsi7000 þar sem ég sá þetta fallega ljóð:Egill
Fyriliðinn minn er nokkuð fagur
hann reiknar dágóða summu
Það líður ekki sá einasti dagur
að hann fái sér ekki lummu.Menn eins og Davíð Stefánsson og fleiri mindu hreinlega skammast sín við hliðiná Monsa, alls ekki slæmt hjá kallinum og er ég honum mjög þakklátur.. Það má alveg segja að það er nokkuð til í þessu hjá honum og er hann alls ekki að fara með neina vitleysu.
En ég held það sé komið að því að fara í koju enda skóli á morgun, Endalaus hamingja.
Kv Egill
Sigur í fyrstaleikEgill Kristinsson
Í gær var maður að keppa sinn fyrsta leik fyrir dalvík og ekki var það nú leiðinlegt að vinna svona fyrsta leikinn sem maður spilar með nýju liði.Þessi leikur var sem sagt á móti völsung og unnum við það 4-3 og að sjálfsögðu fékk maður gult spjald,,, það er ekki að spyrja að því.
En dagurinn í gær var frekar annríkur.. þjálf frá 11 - 13 og svo fór ég á handboltaleik og svo að spila og síðan að dæma og þá var ekkert annað í stöðunni en að klára daginn með sæmd og fá sér öllara..
en þetta er fínt í bili best að fara og fá sér eitthvað að éta..
Egill
Skólinn að startaEgill Kristinsson
Ég hélt ég myndi aldrei segja þetta en mig hlakkar bara til að byrja í skólann.. þetta segjir maður held ég bara þegar maður er búinn að taka sér eina önn í frí og sjá það hvað er mikklu betra að vera í skólanum en að vera að vinna það er bara klárlega málið sko.En ég er að fara að ná í stundartöfluna núna kl 15.00 þó svo að ég sé búinn að sjá hana á netinu. hún lítur eiginlega bara alvega eins út og ég hafði vonast... ekki alveg að drukna í tímum heldur bara svona mjög hentugt fyrir mig þar sem ég get ekkert verið í alltöf mörgum tímum þá fer bara allt í fokk hjá mér.
SVo er að fótboltinn. byrjum að keppa núna næsta laugardag og er fyrsti leikurinn á móti Völsung... verður gamann að sjá hverni manni reiðir af með nýjja liðinu og er eingin smá tilhlökkun.. Ég veit ekki alveg hvernig dallas stendur á móti liðum eins og KA og Þór en það verður bara stemmig að fá að jarða einhverja þarna í KA allanvega, bara snilld..
Nú hagni ég bara heim að gera ekki neitt að bíða eftir af fara að ná í þessa stundartöflu og síða er það bara æfingin í kvöld hérna inná ak og svo bara skóli á morgunn.. shitt ég trúi því samt ekki að fríið sé bara að klársta líður alltof fljótt...
Síðan er það ein önnur tilhlökkunin það er HM í handbolta sem hefst núna í lok janúar og verður maður límdur fyrir framan kassan þá... uuuu... Já nefnilega... maður reynir að ná hverjum einasta leik allanvega með íslenska landsliðinu.. Horfði á leikinn á móti dönum í gær þar sem fyrrihálfleikurinn var ansi mikil skemmtun þó svo að það hafi aðeins versnað í seinni þá var þetta bara skemmtilegt áhorf og gaman að sjá íslenska liðið þó svo að maður hafi orðið fyrir vonbrigðum með nokkra leikmenn..
kv
Egill
Venni PáerEgill Kristinsson
Þvílikir snilldar þættir.. er einhver búinn að vera að horfa á þessa þætti.. vá ég grenja úr hlátri við hvern einasta þátt þessi maður er svo mikill snillingur..Ég held nú samt að þátturinn í gær hafi alveg slegið í gegn.. verð að henda inn nokkrum línum úr þættinum.
Venni: Varst þú ekki að tala um að hittast einhverntíman?
Lilja: ha?
Venni: já varstu ekki að tala um að hittast einhverntíma?
Lilja: ha hvenar?
Venni: Já bara í kvöld ég pikka þig upp klikkan 8 og við förum eitthvað út.
Lilja: ha já oki
Venni: hérna er bæklingur um mig sem þú verður buinn að skoða og kinna þér allt um mig fyrir annað kvöld.
Lilja: já oki en á ég þá ekki að búi til svona fyrir þig
Venni: Nei eingan æsing tökum bara eitt skref í einu..
Bjössi: Ég fór til læknis og hann sagði að ég væri með hellur og ég yrði bara með 50% heyrn þangað til að lyfin færu að virka..
Venni lítur á þjálfunarprógrammið og sér að þar stendur 20 armbeygjur
Venni: Bjössi farðu og gerðu 40 armbeygjur:
Bjössi: okei
Kolli: Venni ætlaru að láta hann taka 40 armbeygjur?
Venni: varstu ekki að hlusta hvað hann var að segja? hann heyrir bara helgminginn sem ég segi..
hahaha
Fólk er kannski ekki alveg að meðtaka þetta svona skrifað niður en ég mæli allanvega með að kíkja á þessa þætti mesta snillldin. Hægt er að horfa á þætinnia á http://www.skjarinn.is/skjareinn/innlendir_thaettir/thattur/store126/item8521/ .Ég skora á fólk til að kíkja á þetta..
Egill
2007Egill Kristinsson
Nýtt ár gengið í garð.Svona til að byrja með þá verð ég að vona að þetta á verði betra en 2006 þótt að það hafi sko alls ekki verið slæmt..
Maður er búinn að gera ýmsar breytingar í lífinu sem eru bara vonandi til hins betra. T.d. kominn með eitt stykki æðislega kærustu, síðan er ég kominn í nýtt félag í fótboltanum, Dalvík/Reynir, sem er bara gott mál að breyta aðeins til..
Held að þetta séu svona stærstu breytingarnar í mínu lífi eins og er.
Síðan hef ég ákveðið að setjast aftur á skólabekkinn á þessu ár og halda áfram því sem frá var horfið.
En er ekki alveg í fílingnum að fara að blogga núna þannig kemur bara meira seinna
Egill
Jóla hvað??Egill Kristinsson
Nú eru einungis 4 dagar til jóla og jólafílingurinn ekki alveg farinn að segja til sín.... en það kemur einhverntíman. Í kvöld erum ég og hjörrinn að fara með strákana í 4.fl á þelamörk og verður það án efa hörku stuð. Tengdó gaf manni bara frí í vinnunni til þess að fara með strákana á þelamörk.Síðan á ég bara eftir að vinna 1 dag fyrir jól og þá er ég kominn í hið lang þráða jólafrí. Er jólafrí ekki það sem allir bíða eftir og er alltaf feignir að vera komnir í frí.. svo þegar fólk er búið að vera í jólafríi í nokkra daga þá er fólki farið að leiðast að hanga og gera ekki neitt.. Ég held að það sé bara eitthvað sem fólk þarf að læra það er að gera ekki neitt.. allanvega sumir þurfa að læra því það, því aðrir kunna það mjög vel þar sem þeira aðilar gera aldrei neit.. Er þetta ekki bara eitthvað sem margir leyfa sér of sjaldan að gera það er að slappa af.. Jólin eru nú bara einu sinni á ári og verða menn að leyfa sér að gera nokkurnveginn það sem þeir vilja og njóta jólanna í faðmi fjölskyldunar.
Smá um veðrið.. hvað er eiginlega í gangi.. það er kominn 20 des og maður getur ligguð við verið úti á stuttbuxum og bol, fyrir utan þennan feiknar vind, þá er þetta bara svona sumar veður. Akureyri bara að skola í burt eða bara fjúka í burt. Bærinn búinn að vera í fréttum síðust 2 daga, fyrst vegna mikills roks og síðan vegna leysinga. Pabba meðal annars var frá hálf 2 til 5 í nótt að reyna að bjarga einhverju drasli og dæla vatni út hjá vinafólki okkar uppí Grenilundi, ástandið ekki alveg það besta og eitthvað eyðilagðist og eitthvað vesen.
Nú vonar maður samt einþá að það verði hvít jól eða allanvega snjói á aðfangadag þótt líkurnar séu ekki mikklar en þó einhverjar.
Jólakortin verða eitthvað fá þetta árið hjá manni, Bryndís sér bara um að skrifa þau þannig maður sleppur násta alveg við þá.. Þannig ef fólk nennir ekki að vera að skrifa jólakort þá verð ég ekkert sár ef ég fæ ekki kort frá einhverjum, frekar skrifa ég bara kveðju hérna inn á síðuna.
Fyrsta æfingin hjá dalvík er núna á eftir og er maður að fara að skella sér núna kl 18, verður örugglega bara hörku stuð, skrítið að vera að fara á æfingu hjá einhverju öðru félgai en KA eða Kabótfen. En svona er þetta nú og verður maður bara að takast á við nýtt verkefni og leysa það bara eins vel og maður getur..
Kv. Egill "Dalvíkingur"
Hlaðborrð og lætiEgill Kristinsson
Nú er maður að fara á jólahlaðborð á hótel KEA á laugardaginn... Allt í boði KA, ég skal bara svara spurningu ykkar strax ,, Já KA á nóg af pening"En ég hef verið að spá með svona jólahlaðborð.. núna er þetta hlaðborð númer 2 sem ég fer á.. Þegar maður fer svona oft á jólahlaðborð þá fær maður bara leið á jólamatnum þegar að honum kemur. Ég held það nefnilega maður er þegar búinn að vera að gæða sér á þessum mat sem maður borðar bara eiginlega á jólunum og hvað er þá svona spennandi að fara að snæða sér á honum þegar þar að kemur.. Þetta er spurninga..
Allanvega fínt núna í nýju vinnunni, en fyrir þá sem ekki vita þá er ég að vinna í fiski hjá fósturpabba Bryndísar hér á dalvík.. þannig ég er nánast fluttur hingað úteftir fer svona 3 í viku inneftir til þess að þjálfa og fer síða aftur útá dalvík.. Bryndís er hinsvegar að vinna á ak og fer 8 á morgnanna og er ekki kominn heim fyrren svona 8 þannig það er ekkert alltof mikill tími sem maður hittir hana, en svona er þessi jólatörn á klippistofunum.
Hver er kominn í jólafíling? ÉG er ekki alvega að fá þennan fíling þar sem þetta er í fyrsta skipti sem maður er ekki bara kominn í frí snemma og er heima að gera ekki neitt.. heldur er ég núna að vinna til 22.des. Þannig þetta er eitthvað voðalega furðilegt.. en verður fínt þegar þetta er búið.. Jólaskapið kemur bara á aðfangadag. En svo er það það.. maður þarf núna að fara að skipuleggja sig fyrir jólinn hvar maður verður hverni hátíðardag því nú er maður kominn með kvennmann og þarf að skipuleggja sig með honum hvar við verðum og í hvaða jólaboð við förum í og svoleiðis dæmi.. En verð allanvega heima á aðfangadag...
En endilega kvitta og svona segja mér hvað er að frétta..
kv. Egill
Pálmi Gunnars - Gleði og friðar jólEgill Kristinsson
Ekki mikið gerust síðan síðast en svona það helst er að ég er kominn með vinnu fram að jólum. Það má segja vinnunar vegna að ég eigi eftir að vera lítið séður í höfborg norðurlands fram að jólum þar sem ég er að fara að vinna út á Dalvík.. Já þið lásuð rétt ég er bara nánast fluttur útá dalvík núna, dáltið skelfilegt að hugsa útí það en svona er þetta víst ef maður nær sér í gellu á dalvík...Ég er búinn að vera að pæla í því með þessar blessuðu jólagjafir... hvað er erfiðara en að finna jólagjöf handa kærustunni, flestar þeirra eiga nú nánast allt og hvað á þá að gefa þeim. það sem þeir eiga kannski síst er eitthvað úr rúmfatalagernum eða Tiger. Það er kannski bara lausnin í ár fyrir þær konur sem allt eiga...Eða hvað segið þið?
Sama sinnis þá er ég ekki alveg með á hreinu hvað mig langar í í jólagjöf.. ætli maður verði ekki að fara að drulla því útúr sér svona einhverntíman fyrir jól svo maður fái kannski eitthvað sem manni langar í.
En allanvega þetta er svona smá til að hugsa um. Og strákar Tiger eða Rúmfó?
Egill
